Forsíða
Round Table á Íslandi
Sælir félagar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Þórhallur   

Sælir félagar
Þetta er alltaf skemmtilegur tími þegar nýtt starfsár fer í gang og eftirvænting félaga orðin mikil hjá sumum svo mikil að það jaðrar við bið eftir jólunum.

Margt er framundan t.d. afmælisfundur hjá RT-1 sem ég hvet félaga að mæta á. Svo styttist í fulltrúaráðsfundinn sem haldinn verður 8. og 9. okt nk. á Eskifirði að þessu sinni. Veit að Lolli og Grétar fara fyrir flottum hópi RT-félaga sem eru að undirbúa þetta „hrikalega“.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 20:11
Nánar...
 
40 ára afmæli hreyfingarinnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Þórarni Þórhallssyni   

Sælir félagar

Nú fer að styttast í afmælið. Við vonumst til að sem flestir RT félagar
sjái sér fært að mæta (sérstaklega á laugardaginn) í boð á Bessastaði og um kvöldið í mat.

Verð fyrir laugardaginn Gala og Bessastaði er kr. 10.000 á mann.
Endilega taka konurnar með.


Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 21:10
Nánar...
 
Fréttabréf IRO Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Þórhallur   

Sælir góðir félagar

EMATM var haldið í Pisa dagana 24. til 27. júní sl. Þann fund sóttu undirritaður og Njáll T. F. forseti RTÍ. Voru þetta ljúfir og góðir dagar á mjög fínu hóteli.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 21:36
Nánar...
 
Lampinn góði Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ritstjori   

Fyrir nokkrum árum birtist á sjónarsviðinu fjölgunarlampinn góði. Þessi gríðarmikli póst-rómantíski lampi með flennistórum barmableikum skermi hefur leikið stórt hlutverk á fulltrúaráðsfundum, bókstaflega.
 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 19:07
Nánar...
 
Heimsóknir Forseta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 07. september 2010 16:02

Á dögunum var samþykkt breyting á siðareglum hreyfingarinnar, þar sem þeirri kvöð var aflétt að forseti þyrfti að heimsækja hvern klúbb að minnsta kosti einu sinni á starfsárinu. Þótti nefndinni þessi kvöð vera barn síns tíma þegar klúbbar voru taldir á fingrum beggja handa, og kannski ein til tvær tær með. Nú er þessari ábyrgð deilt meðal þriggja stjórnarmanna; forseta, varaforseta og alþjóðafulltrúa.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 20:15
Nánar
 
Veisla í Vaglaskógi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Erlingur Óðinsson   

Erlingur Óðinsson portraitKæru félagar nú er komið að því að nýja heimasíðan er komin í loftið, og er það mér sönn ánægja að fá að byrta fyrsta pistilinn.Margir hafa sent mér pistla á undanförnum mánuðum sem verða byrtir von bráðar á nýu síðunni, endileg sendið mér áfram pistla og myndir.

Mig langaði að segja ykkur frá  frábærri sumarútileigu sem haldin var 19. og 20. júní þar sem yfir 90 manns mættu í Vaglaskóg.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 23:18
Nánar...
 
Joomla template by a4joomla