|
Fundarboð 3ja fulltrúaráðsfundar og dagskrá |
|
|
|
|
Skrifað af: Njáll Trausti Friðbertsson
|
|
Sælir félagar
Hér með er boðað til 3.fulltrúaráðsfundar RTÍ starfsárið 2010-2011.
Fundurinn verður haldin á Laxárbakka, Hvalfjarðarsveit laugardaginn
12.febrúar. Það eru félagar okkar í RT-15 sem sjá um fundinn. Þetta er
fyrsti fulltrúaráðsfundurinn sem haldin er í þeirra umsjón.
Dagskráin sem þeir hafa verið að vinna að hörðum höndum munu birtast á
heimasíðu RTÍ á næstu dögum ásamt skráningarformi. Á föstudagskvöldinu ætlum við að endurtaka kynningarfundinn (,,forhúð“)
með svipuðum hætti og við vorum með í Fjarðabyggð í haust.
Ég vil einnig minna á samþykkt 3.fundar fulltrúaráðsins sem haldin var á
Akureyri 13.febrúar 2010 þar sem eftirfarandi kom inn í siðareglur
hreyfingarinnar:
Reglur um greiðslur þátttakenda á fulltrúaráðsfundum.
-
Hverjum klúbbi er skylt að greiða fyrir tvo fulltrúa á 2. og 3.
fulltrúaráðsfund RTÍ, en fyrir þrjá fulltrúa klúbbs á 4.
fulltrúaráðsfund/aðalfund RTÍ.
-
Upphæðin skal vera að hámarki 3.000 krónur fyrir hvern fulltrúa, miðað
við neysluvísitölu 13.febrúar 2010 og hækkar/lækkar í samræmi við
vísitöluna.
-
Gert er ráð fyrir því að klúbbar gangi frá þessum greiðslumálum sín á
milli, en ef ágreiningur rís, þá skal landsstjórn hafa úrskurðarvald í
málinu og leysa úr ágreiningi milli aðila.
-
Eru þessar reglur til þess að klúbbar sem halda
fulltrúaráðsfundi/aðalfundi RTÍ hafi eðlilegan rekstargrundvöll vegna
þess kostnaðar sem til fellur við slíka fundi, mæti hvorugur eða aðeins
annar fulltrúi aðildarklúbbs RTÍ.
Mig langar að hvetja alla RT-félaga að mæta. Fjölmennum og eigum góða
helgi saman.
Dagskrána er svo að finna hér.
Ykkar í RT,
Njáll Trausti Friðbertsson
Forseti RTÍ 2010-2011.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 28. janúar 2011 16:27 |